Nokia N76 - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

background image

8

ÖRYGGISAFRIT Muna skal að taka öryggisafrit
eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar
sem geymdar eru í tækinu.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI Þegar tækið er
tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með
því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi.
Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

NEYÐARHRINGINGAR Tryggja skal að kveikt
sé á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar.
Ýta skal á endatakkann eins oft og þarf til að
hreinsa skjáinn og fara aftur í biðstöðu. Sláðu
inn neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann.

Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt
til notkunar í (E)GSM 850, 900, 1800 og 1900 og
UMTS 2100 símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um símkerfi.

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt.

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé
að afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist
(þ.m.t. hringitóna) og annað efni.

Tækið styður internettengingar og aðrar tengiaðferðir.
Líkt og með tölvur geta vírusar, skaðleg skilaboð og forrit,
ásamt öðru skaðlegu efni haft áhrif á tækið. Gæta skal
varúðar og aðeins opna skilaboð, samþykkja tengibeiðnir,
hlaða niður efni og samþykkja uppsetningar frá traustum
aðilum. Til að auka öryggi tækisins er ráðlegt að setja upp,
nota og uppfæra reglubundið bæði vírusvarnarbúnað,
eldvegg og annan slíkan hugbúnað í tækinu og
tengdum tölvum.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,

annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki
skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja
getur valdið truflun eða hættu.

Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word,
PowerPoint og Excel (Microsoft Office 97, 2000 og XP).
Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.

Við lengri aðgerðir eins og samnýtingu hreyfimynda
eða háhraðagagnatengingu getur tækið hitnað. Það er
í flestum tilvikum eðlilegt. Ef tæki vinnur ekki rétt skal
fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.

Tækið kann að innihalda bókamerki og tengla að vefsetrum
þriðju aðila. Þú getur einnig heimsótt vefsetur þriðju aðila
um tækið. Vefsetur þriðju aðila tengjast ekki Nokia og

background image

9

Nokia hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt
heimsækja slík setur skaltu beita öryggisráðstöfunum.

Ekki er víst að myndirnar í þessari handbók séu eins og
á skjá tækisins.

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að
þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi.
Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu.
Ekki er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum.
Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram
á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu. Leiðbeiningar
ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir
sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu.
Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi
og þjónustu.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar
í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann
heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið breytt.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa

tækis, svo sem MMS, vafur og tölvupóstur krefjast
símkerfisstuðnings við þessa tækni.

Aukahlutir, rafhlöður
og hleðslutæki

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður
en rafhlaðan er fjarlægð.

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru
notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
hlaðið raforku frá AC-3 eða AC-4 hleðslutæki og frá AC-1,
ACP-8, ACP-9, ACP-12 eða LCH-12 hleðslutæki þegar það
er notað með CA-44 millistykki.

Rafhlaðan sem ætluð er til notkunar með þessu tæki
er BL-4B.

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki

og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með
þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti
öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun
getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti
sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur er
tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.