
Úrræðaleit: Spurningar & Svör
112
Úrræðaleit: Spurningar & Svör
Lykilorð
Spurning: Hvað er lykilorðið mitt fyrir læsingar-, PIN-,
eða PUK-númerin?
Svar: Sjálfgefna
númerið
er
12345. Hafðu
samband við söluaðilann ef þú týnir
eða gleymir læsingarnúmerinu.
Ef þú gleymir eða týnir PIN- eða PUK-
númeri, eða ef þú hefur ekki fengið
slíkt númer, skaltu hafa samband við
þjónustuveituna. Upplýsingar um lykilorð
má fá hjá aðgangsstaðaþjónustu, t.d.
netþjónustuveitu eða þjónustuveitu.
Rafhlaða
Spurning: Hvers vegna tæmist rafhlaðan hratt?
Svar:
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa
slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan
aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar
rafhlöðuorku og minnka endingu rafhlöðunnar.
Pakkagagnatenginar minnka einnig
endingu rafhlöðunnar. Ef þú hefur stillt
Pakkagagnatenging
á
Ef samband næst
í
Tengistillingar
og ekkert pakkagagnasamband
er til staðar (GPRS) reynir tækið reglulega að
koma á pakkagagnatengingu og það styttir
endingartíma rafhlöðunnar.
Til að lengja starfhæfan tíma tækisins skaltu
slökkva á Bluetooth-tækninni þegar þú ert ekki
að nota hana. Stilltu einnig
Pakkagagnatenging
á
Ef með þarf
. Til að loka öllum forritum sem keyra
í bakgrunninum, en eru ekki í notkun, skaltu halda
inni og velja forritin af listanum. Farðu svo út
úr forritinu.
Forrit svarar ekki
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið, þ.e.
svarar ekki?
Svar:
Halda skal inni
. Flettu svo að forritinu
og ýttu á .
Bluetooth-tengingar
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns?
Svar:
Kannaðu hvort bæði tækin eru samhæf, hvort
Bluetooth-tengingin sé virk og ekki í falinni
stillingu. Gakktu einnig úr skugga um að fjarlægðin
á milli tækjanna tveggja sé ekki meiri en 10 metrar
(33 fet) og að ekki séu veggir eða aðrar hindranir
á milli þeirra.
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-tengingu?
Svar:
Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið
tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á Bluetooth-
tengingunni í tækinu þínu. Veldu
Verkfæri
>
Bluetooth
>
Bluetooth
>
Slökkt
.

Úrræðaleit: Spurningar & Svör
113
Myndavél
Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?
Svar:
Gakktu úr skugga um að hlífðargler
myndavélarlinsunnar séu hrein.
Skjár
Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir eða skærir
punktar á skjánum þegar ég kveiki á tækinu?
Svar:
Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám.
Á sumum skjám geta verið dílar eða punktar
sem lýsa annaðhvort stöðugt eða alls ekki. Hér
er ekki um að ræða galla heldur eðlilegan hlut.
Lítið minni
Spurning: Hvað get ég gert ef minnið í tækinu er lítið?
Svar:
Þú getur eytt ónotuðu efni sem vistað er í tækinu
reglulega til að komast hjá því að minnið fyllist.
Sjá „Lítið minni eftir—losa minni“ á bls. 21.
Til að eyða tengiliðaupplýsingum,
dagbókaratriðum, teljurum, kostnaðarteljurum,
leikjastigum, eða hvaða gögnum öðrum sem er,
skaltu opna viðkomandi forrit til að fjarlægja
gögnin. Ef verið er að eyða mörgum atriðum
og ein eftirfarandi athugasemda birtist:
Ekki
nægilegt minni fyrir aðgerð. Eyða þarf einhv.
gögnum fyrst.
eða
Lítið minni eftir. Eyddu
einhverjum gögnum úr minni símans.
skaltu
reyna að eyða einu atriði í einu (með því að
eyða fyrst því sem tekur minnst pláss).
Til að sjá hvers konar gögn eru geymd
í símanum og hversu mikið minni mismunandi
gögn nota skaltu ýta á
og velja
Verkfæri
>
Skráarstjórn
>
Valkostir
>
Minnisupplýsingar
.
Spurning: Hvernig get ég vistað gögnin mín?
Svar:
Vistaðu gögnin með einni af eftirfarandi leiðum:
•
Notaðu Nokia Nseries PC Suite til að búa til öryggisafrit af
öllum gögnum og setja það á samhæfa tölvu.
•
Sendu myndir á tölvupóstfangið þitt og vistaðu svo
myndirnar í tölvunni.
•
Sendu gögn með Bluetooth-tengingu í samhæft tæki.
•
Vistaðu gögn á samhæfu minniskorti.
Skilaboð
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið?
Svar:
Tengiliðarspjaldið inniheldur hvorki símanúmer
né tölvupóstfang. Bættu upplýsingunum sem
vantar á tengiliðarspjaldið í
Tengiliðir
.
Margmiðlunarboð
Spurning: Tilkynningin
Sæki skilaboð
birtist í stutta stund.
Hvað er að?
Svar:
Tækið er að reyna að sækja
margmiðlunarskilaboð frá skilaboðastöðinni.
Gakktu úr skugga um að stillingar fyrir
margmiðlunarboð séu rétt valdar og að símanúmer
og vefföng séu rétt. Ýttu á
og veldu
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
MMS
.

Úrræðaleit: Spurningar & Svör
114
Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu þegar
tækið kemur henni alltaf á aftur?
Svar:
Til að koma í veg fyrir að tækið komi
á gagnatengingu skaltu ýta á
og velja
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
Móttaka margmiðl.
og svo eitt af eftirfarandi:
Handvirkt val
—Til að láta skilaboðamiðstöð
margmiðlunarboða vista skilaboðin sem þú
vilt sækja síðar. Þú færð tilkynningu um að ný
margmiðlunarboð bíði þín í skilaboðamiðstöð
margmiðlunarboða.
Óvirk
—Til að hundsa öll margmiðlunarboð
sem berast. Eftir þessa breytingu kemur
tækið aldrei á tengingu við farsímakerfið
vegna margmiðlunarboða.
Tenging við tölvu
Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með að tengja tækið
við tölvuna mína?
Svar:
Gakktu úr skugga um að Nokia Nseries PC Suite
sé uppsett og í gangi á tölvunni þinni. Nánari
upplýsingar er að finna í notendahandbókinni fyrir
Nokia Nseries PC Suite á geisladiskinum. Til að sjá
upplýsingar um notkun Nokia Nseries PC Suite
skaltu skoða hjálparvalmyndina í Nokia Nseries
PC Suite eða þjónustusíðurnar á www.nokia.com.
Spurning: Get ég notað tækið sem faxmótald með samhæfri
tölvu?
Svar:
Þú getur ekki notað tækið sem faxmótald. Með því
að nota símtalsflutning (sérþjónusta) getur þú hins
vegar beint mótteknum faxsendingum í annað
símanúmer.