Prentun mynda
Til að prenta myndir með
Myndprentun
skaltu velja mynd
sem á að prenta og síðan prentvalkostinn í galleríinu,
myndavélinni, myndvinnslunni eða á myndskjánum.
Veldu
Myndprentun
til að prenta myndir og notaðu
USB-snúru, Bluetooth-tengingu eða samhæft
minniskort (ef það er í tækinu).
Aðeins er hægt að prenta myndir sem eru á .jpg-sniði.
Myndirnar sem teknar eru með myndavélinni eru
sjálfkrafa vistaðar á .jpeg-sniði.
Áður en hægt er að prenta út á samhæfum PictBridge-
prentara þarf að tengja gagnasnúruna og gæta þess að
snúrustillingin sé stillt á
Myndprentun
eða
Spyrja við
tengingu
. Sjá „USB-snúra“ á bls. 63.