Nokia N76 - Samnýting

background image

Samnýting

Með forritinu

Samnýting

er hægt að samnýta myndir og

myndskeið í samhæfum netalbúmum, bloggsíðum eða
í annarri samnýtingarþjónustu á netinu. Hægt er að hlaða
upp efni, vista færslur í vinnslu sem drög og halda áfram
síðar, og skoða innihald albúmsins. Það fer eftir
þjónustuveitunni hvaða tegundir efnis eru studdar.

Til að geta notað

Samnýting

verður þú að gerast áskrifandi

að þjónustunni hjá þjónustuveitu sem annast slíka
þjónustu. Venjulega er hægt að gerast áskrifandi
að þjónustunni á vefsíðu þjónustuveitunnar.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um áskrift að
þjónustunni. Nánari upplýsingar um þjónustuveitur
er að finna á hjálparsíðum á www.nseries.com/support
eða vefsetri Nokia í eigin landi.

Nánari upplýsingar um forritið er að finna í bæklingum
um tækið á www.nseries.com/support eða vefsetri Nokia
í eigin landi.