Myndavél
Í tækinu eru tvær myndavélar, ein með hárri upplausn
aftan á tækinu (aðalmyndavélin með landslagsstillingu)
og önnur með minni upplausn í hægra horni efst
á aðalskjánum (fremri myndavélin með
andlitsmyndastillingu). Hægt er að nota báðar
myndavélarnar til að taka kyrr- og hreyfimyndir.
Tækið styður allt að 1600x1200 punkta myndupplausn
í aðalmyndavélinni. Myndupplausnin í þessari handbók
getur virst önnur.
Myndirnar og hreyfimyndirnar vistast sjálfkrafa
í möppunni
Myndir & hr.m.
í
Gallerí
Myndir eru teknar
á .jpeg sniði. Hreyfimyndir eru teknar upp á MPEG-4-sniði
með endingunni .mp4 eða 3GPP-sniði með endingunni
.3gp (
Samnýting
). Sjá „Stillingar fyrir hreyfimyndir“
á bls. 38.
Hægt er að senda myndir og hreyfimyndir
í margmiðlunarboðum, sem viðhengi í tölvupósti eða
um Bluetooth-tengingu. Einnig er hægt að hlaða þeim
upp í samhæft netalbúm. Sjá „Samnýting“ á bls. 43.