Nokia N76 - Stillingar—litur og lýsing

background image

Stillingar—litur og lýsing

Til að gera myndavélinni kleift að greina betur liti
og lýsingu eða til að bæta inn áhrifum í myndir eða
hreyfimyndir skaltu nota skruntakkann til að fletta
gegnum tækjastikuna og velja úr eftirfarandi valkostum:

Ljósgjafi

—Veldu ljósgjafa af listanum. Þetta gerir

myndavélinni kleift að endurskapa liti af meiri nákvæmni.

Leiðrétting við myndatöku

(aðeins fyrir kyrrmyndir)—

Stilltu leiðréttingu á lýsingu myndavélarinnar.

Flass

—Veldu tiltekna flassstillingu. Sjá „Flass“ á bls. 34.

Litáferð

—Veldu litáferð af listanum.

Ljósnæmi

(aðeins fyrir kyrrmyndir)—Veldu ljósnæmi

myndavélarinnar. Því dimmara sem umhverfið er
þeim mun meira ætti ljósnæmið að vera.

Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar eru valdar
og sýnir hvernig lokaútkoma myndarinnar eða
hreyfimyndarinnar verður.

Hvaða stillingar eru í boði veltur á því hvaða myndavél
hefur verið valin. Þegar myndavélinni er lokað eru
sjálfgefnar stillingar hennar valdar aftur.

Ef þú velur nýtt umhverfi kemur það í stað lita- og
birtustillinganna. Sjá „Umhverfi“ á bls. 35. Hægt
er að breyta stillingunum ef þörf krefur eftir að
umhverfi hefur verið valið.

background image

My

ndav

él

35