Nokia N76 - Tækjastika

background image

Tækjastika

Tækjastikan er með flýtivísum til að velja ýmsa hluti og
stillingar áður eða eftir að mynd eða hreyfimynd er tekin.

Ef ytri skjárinn er notaður sem myndgluggi skaltu
ýta á

til að tækjastikan sjáist. Notaðu

hljóðstyrkstakkana til að skruna að tilteknum hlut.
Ýttu á

til að velja hann.

Ef aðalskjárinn er notaður sem myndgluggi skaltu skruna
að tilteknum hlut. Ýttu á

til að velja hann.

Valkostir í boði velta á því hvaða tökustilling hefur verið
valin. Einnig er hægt að velja hvort tækjastikan sé alltaf
sýnileg á skjánum eða gerð virk með því að ýta á takka.

Ef þú vilt að tækjastikan sjáist áður og eftir að mynd eða
hreyfimynd er tekin skaltu velja

Valkostir

>

Sýna tákn

. Til

að sjá tækjastikuna bara þegar þú þarft þess skaltu velja

Valkostir

>

Fela tákn

. Þá sést aðeins tökustillingarvísirinn

á skjánum. Til að gera tækjastikuna virka skaltu ýta á

.

Tækjastikan er sýnileg í 5 sekúndur.

Áður en þú tekur mynd eða hreyfimynd skaltu velja
úr eftirfarandi valkostum á tækjastikunni:

til að velja umhverfi.

til að velja flass-stillingu (aðeins fyrir kyrrmyndir).

til að kveikja á sjálfvirkri myndatöku (aðeins fyrir

kyrrmyndir). Sjá „Þú ert með á myndinni—sjálfvirk
myndataka“ á bls. 36.

til að kveikja á myndaraðarstillingu (aðeins fyrir

kyrrmyndir). Sjá „Nokkrar myndir teknar í röð“ á bls. 35.

til að velja litaáferð.

til að stilla ljósgjafa.

til að stilla birtuskilyrði (aðeins fyrir kyrrmyndir).

til að stilla ljósnæmi (aðeins fyrir kyrrmyndir).

Táknin breytast og sýna hvaða stillingar eru virkar.

Valkostirnir sem eru í boði eru mismunandi eftir því
hvaða tökustillingu og skjá þú notar.

Stillingar tækjastikunnar eru ekki tiltækar fyrir
aukamyndavélina.

Sjá einnig valkosti á tækjastiku í „Að myndatöku lokinni“
á bls. 32, „Að hreyfimyndatöku lokinni“ á bls. 37 og
„Tækjastika“ á bls. 40 í

Gallerí

.