Nokia N76 - Höfuðtól

background image

Höfuðtól

Hægt er að tengja samhæft höfuðtól
eða samhæf heyrnartól við Nokia
AV-tengi (3,5 mm) tækisins. Þú gætir
þurft að velja snúrustillinguna.

Ekki skal tengja saman tæki sem
senda frá sér merki þar sem slík getur
valdið skemmdum á tækinu. Ekki skal
stinga spennugjafa í samband við
Nokia AV-tengið.

Ef utanaðkomandi tæki eða annað
höfuðtól en það sem Nokia viðurkennir til notkunar með
tækinu er sett í samband við Nokia AV-tengi skal gæta
sérstaklega að hljóðstyrknum.

background image

Nokia N76

kið

20

Viðvörun: Þegar höfuðtólið er notað getur það

skert heyrn á umhverfishljóðum. Ekki skal nota
höfuðtólið þar sem hætta getur stafað af.

Ef nota á höfuðtól eða heyrnartæki með samhæfri
fjarstýringu, t.d. millistykkinu Nokia Audio Controller
AD-43, skaltu skaltu stinga henni í samband við tengið
í tækinu og tengja síðan höfuðtólið eða heyrnartólin
við hana.

Ekki fylgir hljóðnemi með öllum höfuðtólum. Í símtölum
skal nota höfuðtól með fjarstýringu eða hljóðnema
tækisins.

Þegar tilteknir aukahlutir fyrir höfuðtól eru notaðir,
t.d. Nokia Audio Controller AD-43 millistykkið skal nota
hljóðstyrkstakka tækisins til að stilla hljóðstyrkinn
meðan talað er í símann. Nokia Audio Controller AD-43
millistykkið er með margmiðlunarhljóðstillingu sem er
aðeins notuð til að stilla hljóðstyrk við spilun tónlistar
eða hreyfimynda.