Nokia N76 - Kallkerfi

background image

Kallkerfi

.

Í kallkerfi (PTT) (sérþjónusta) er um að ræða símtal yfir IP
í rauntíma sem komið er á með GSM/GPRS-símkerfi.
Kallkerfi býður upp á bein samskipti sem komið er
á með því að ýta á takka. Nota skal kallkerfið til
að tala við einn aðila eða hóp manna.

Áður en kallkerfi er tekið í notkun þarf að tilgreina
aðgangsstað og stillingar fyrir kallkerfið. Stillingarnar
kunna að berast í sérstökum textaskilaboðum frá
þjónustuveitunni sem býður upp kallkerfisþjónustuna.
Einnig er hægt að nota forritið

Still.hjálp

til að setja

upp stillingarnar ef þjónustuveitan styður slíkt.

Í samskiptum gegnum kallkerfið talar einn aðili en hinir
hlusta gegnum innbyggða hátalarann. Notendur skiptast
á að svara hver öðrum. Þar sem aðeins einn aðili getur
talað í einu fær hann tiltekinn hámarkstíma.
Hámarkstíminn er venjulega 30 sekúndur. Hafðu
samband við þjónustuveituna til að fá upplýsingar
um hvaða hámarkstíma símkerfið veitir.

Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu

þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur
verið mjög mikill.

Símtöl hafa ávallt forgang fram yfir kallkerfi.

Nánari upplýsingar um kallkerfið er að finna í bæklingum
um tækið á www.nseries.com/support eða vefsetri Nokia
í eigin landi.