
Boð samþykkt
Þegar þú færð boð um samnýtingu birtist boðið ásamt
nafni eða SIP-vistfangi sendandans. Ef tækið þitt er ekki
stillt á
Án hljóðs
hringir það þegar þú færð boð.
Ef einhver sendir þér boð um samnýtingu og þú ert ekki
innan UMTS-þjónustusvæðis, færðu ekki að vita að þér
hafi verið send boð.
Þegar þú færð boð geturðu valið:
Samþykk.
—til að hefja myndsendinguna.
Hafna
—til að hafna boðinu. Sendandinn fær skilaboð
um að þú hafir hafnað boðinu. Þú getur einnig stutt
á hætta-takkann til að hafna samnýtingunni og leggja á.
Til að taka hljóðið af hreyfimynd meðan tekið er á móti
henni skaltu velja
Hljóð af
.
Veldu
Stöðva
til að ljúka myndsendingunni. Einnig er
slökkt á myndsendingunni þegar lagt er á viðkomandi.