Forsendur fyrir samnýtingu
hreyfimynda
Þar sem nauðsynlegt er að koma á sambandi við
UMTS-símkerfi áður en hægt er að nota
Samn. hreyfim.
veltur það hvort þú getir notað
Samn. hreyfim.
á því hvort
slíkt símkerfi sé til staðar. Upplýsingar um farsímakerfið,
þjónustuna og gjald fyrir hana fást hjá þjónustuveitunni.
Til að hægt sé að nota
Samn. hreyfim.
þarftu að
gera eftirfarandi:
•
Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir
tengingar á milli einstaklinga. Sjá „Stillingar“ á bls. 86.
•
Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu
og sért innan dreifisvæðis UMTS-símkerfis. Sjá
„Stillingar“ á bls. 86. Ef þú byrjar samnýtinguna
meðan þú ert innan UMTS-farsímakerfis og skipt
er yfir í GSM-farsímakerfi, lýkur samnýtingunni en
símtalið heldur áfram. Ekki er hægt að hefja
Samn.
hreyfim.
nema þú sért innan UMTS-þjónustusvæðis.
•
Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og
viðtakandinn séu skráðir á UMTS-símkerfið. Ef þú
býður einhverjum í samnýtingu og tæki viðkomandi
er ekki innan UMTS-þjónustusvæðis eða býður ekki
upp á
Samn. hreyfim.
eða er stillt á tengingu á milli
einstaklinga veit viðkomandi ekki að þú sért að senda
honum boð. Þú færð villuboð um að viðtakandinn geti
ekki samþykkt boðið.
Símtöl
86