Nokia N76 - Raddstýrð hringing

background image

Raddstýrð hringing

Tækið þitt styður raddskipanir. Raddskipanir velta ekki
á rödd notandans þannig að ekki þarf að taka upp
raddmerki áður en þær eru notaðar. Þess í stað býr
tækið til raddmerki fyrir færslur í tengiliðum og ber
það raddmerki sem notandinn segir saman við þær.
Raddkennslin í tækinu laga sig að rödd aðalnotandans
til að líklegra sé að tækið beri kennsl á raddskipunina.

Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið sem
er vistað á tengiliðarspjaldinu. Til að hlusta á tilbúið
raddmerki skaltu opna tengiliðaspjald, skruna að númeri
með raddmerki og velja

Valkostir

>

Spila raddmerki

.

Hringt með raddmerki

Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið

í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti
ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.

Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn
í notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð fram
raddmerkið.

1

Haltu inni hægri valtakkanum í biðstöðu til að
hefja raddstýrða hringingu. Ef samhæft höfuðtól
með höfuðtólstakka er notað skaltu halda honum
inni til að hefja raddstýrða hringingu.

2

Stuttur tónn heyrist og textinn

Tala nú

birtist

á skjánum. Berðu skýrt fram nafnið eða
gælunafnið sem er vistað á tengiliðarspjaldinu.

3

Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn
á því tungumáli sem er valið og birtir nafnið og
símanúmerið. Eftir 2,5 sekúndur hringir tækið
í númerið.
Ef tækið valdi rangan tengilið skaltu velja

Næsta

til að skoða aðrar niðurstöður á lista eða

Hætta

til að hætta við raddstýrða hringingu.

Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur tækið
sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint. Annars velur
tækið fyrsta númerið í eftirfarandi röð:

Farsími

,

Farsími

background image

Símtöl

84

(heima)

,

Farsími (vinna)

,

Sími

,

Sími (heima)

og

Sími (vinna)

.