Nokia N76 - Öryggi

background image

Öryggi

Til að breyta öryggisstillingum skaltu velja

og síðan

Verkfæri

>

Stillingar

>

Almennar

>

Öryggi

>

Sími og

SIM-kort

,

Vottorðastjórnun

eða

Öryggiseining

.

Sími og SIM-kort

Beðið um PIN-númer

—Þegar kveikt er á þessari stillingu

er beðið um númerið í hvert skipti sem kveikt er á tækinu.
Ekki er víst að öll SIM-kort leyfi að beiðni um PIN-númer
sé gerð óvirk.

PIN-númer

,

PIN2-númer

og

Númer fyrir læsingu

—Hægt

er að breyta læsingarnúmeri, PIN-númeri og PIN2-númeri.
Þessi númer geta aðeins innihaldið tölur frá 0 til 9.
Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum. Sjá „Útskýringar á PIN-
númerum og númerum fyrir læsingu“ á bls. 104.

Forðastu að nota aðgangsnúmer sem líkist
neyðarnúmerum, t.d. 112, til að komast hjá því að hringja
óvart í neyðarnúmer.

Sjálfvirk læsing takka

—Veldu hvort takkaborðið eigi að

læsast þegar tækið hefur ekki verið notað í tiltekinn tíma.

Ábending! Til að læsa eða aflæsa takkaborðinu

handvirkt skaltu ýta á

og síðan

Sjálfv. læsingartími síma

—Til að koma í veg fyrir

óleyfilega notkun er hægt að stilla sjálfvirka læsingu
á tíma. Ekki er hægt að nota læst tæki fyrr en búið
er að slá inn rétt læsingarnúmer. Veldu

Enginn

til

að slökkva á þessari stillingu.

Sjá „Útskýringar á PIN-númerum og númerum
fyrir læsingu“ á bls. 104.

Þegar tækið er læst kann að vera hægt að hringja
í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

Ábending! Til að læsa tækinu handvirkt skaltu ýta

á

. Listi yfir skipanir opnast. Veldu

Læsa síma

.

Læsa ef skipt um SIM-kort

—Þú getur látið tækið biðja

um númerið fyrir læsingu þegar óþekkt SIM-kort er sett
í það. Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort
sem það viðurkennir sem kort eigandans.

Lok. notendahópur

—Þú getur tilgreint hóp fólks sem

þú getur hringt í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).

background image

Stillingar

104

Þegar símtöl eru takmörkuð við lokaða notendahópa kann
að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er
forritað í tækið.

Staðfesta SIM-þjón.

—Þú getur látið tækið birta

staðfestingarboð þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).

Útskýringar á PIN-númerum og númerum
fyrir læsingu

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum.

PIN-númer—Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað
í leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir yfirleitt
með SIM-kortinu. Þegar PIN-númerið er slegið rangt inn
þrisvar sinnum er númerinu lokað og þá þarf að slá inn
PUK-númerið til að opna það.

UPIN-númer—Númerið kann að fylgja með USIM-kortinu.
USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til að nota
í UMTS-farsímum.

PIN2-númer—Númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir sumum
SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.

Læsingarnúmer (einnig þekkt sem öryggisnúmer)—Hægt
er að nota þetta númer (5 tölustafi) til að læsa tækinu og
hindra þannig að það sé notað í leyfisleysi. Upphaflega
númerið fyrir læsingu er 12345. Breyttu númerinu fyrir

læsingu til að koma í veg fyrir óleyfilega notkun tækisins.
Haltu nýja númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri
tækinu. Hafa skal samband við þjónustuveituna ef
einhver af þessum númerum glatast.

PUK- og PUK2-númer—Þessi númer (8 tölustafir) eru
nauðsynleg til að breyta lokuðu PIN-númeri eða PIN2-
númeri. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu skaltu
hafa samband við símafyrirtækið sem lét þig fá SIM-kortið.

UPUK-númer—Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt til
að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir ekki með
USIM-kortinu skaltu hafa samband við símafyrirtækið sem
lét þig fá USIM-kortið.

Vottorðastjórnun

Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð
til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.

Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir
heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Ýttu á

til

að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er til staðar.

Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka, öðru
vefsvæði eða miðlara þar sem trúnaðarupplýsingar eru
sendar. Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna
á vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu
og settur upp.

background image

Stillingar

105

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr

þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi
fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.
Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð
eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð
eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið
vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki tekið gildi“
birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal
athuga hvort rétt dag- og tímasetning er á tækinu.

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og
að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Upplýsingar um vottorð skoðaðar—
áreiðanleiki kannaður

Þú getur aðeins verið viss um rétt auðkenni miðlara þegar
búið er að kanna undirskrift og gildistíma
miðlaravottorðsins.

Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða
ef tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.

Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að fletta
að því og velja

Valkostir

>

Upplýs. um vottorð

. Þegar

upplýsingar um vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins
kannað og einhver af eftirfarandi athugasemdum
getur birst:

Vottorði ekki treyst

—Þú hefur ekki valið vottorðið fyrir

nein forrit. Sjá „Trauststillingum breytt“ á bls. 105.

Vottorð útrunnið

—Gildistími vottorðsins hefur runnið út.

Vottorð ekki enn gilt

—Gildistími vottorðsins er ekki

runninn upp.

Vottorð skemmt

—Ekki er hægt að nota vottorðið.

Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.

Trauststillingum breytt

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og
að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Flettu að heimildavottorði og veldu

Valkostir

>

Stillingar

f. traust

. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem valið er, birtist

yfir forritin sem geta notað það.

Symbian-uppsetning

:

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.

Internet

:

—Vottorðið getur sannreynt miðlara.

Uppsetning forrita

:

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýrra Java

TM

-forrita.

Veldu

Valkostir

>

Breyta still. f. traust

til að

breyta gildinu.

background image

Stillingar

106

Öryggiseining

Til að skoða eða breyta öryggiseiningu (ef hún er í boði)
í

Öryggiseining

skaltu fletta að henni og ýta á

.

Flettu að öryggiseiningu og veldu

Valkostir

>

Öryggisupplýsingar

til að skoða nánari

upplýsingar um hana.