Aðgangsstaðir
Hægt er að fá aðgangsstaðastillingar í skilaboðum frá
þjónustuveitu. Sjá „Gögn og stillingar“ á bls. 73. Sumir
eða allir aðgangsstaðir gætu verið forstilltir fyrir tækið
af þjónustuveitunni og því er ekki víst að hægt sé að
breyta þeim, búa þá til eða fjarlægja.
táknar varinn
aðgangsstað og
táknar pakkagagnaaðgangsstað.
Nýr aðgangsstaður er búinn til með því að velja
Valkostir
>
Nýr aðgangsstaður
.
Stillingum aðgangsstaðar er breytt með því að velja
Valkostir
>
Breyta
. Fylgdu leiðbeiningum
þjónustuveitunnar.
Nafn tengingar
—Sláðu inn heiti fyrir tenginguna.
Flutningsmáti
—Veldu gerð gagnatengingarinnar.
Það hvaða stillingareiti er hægt að velja fer eftir því hvaða
gagnatenging er valin. Fylltu út alla reiti sem eru merktir
með
Þarf að skilgr.
eða rauðri stjörnu. Aðra reiti þarf ekki
að fylla út nema þjónustuveitan hafi tekið það fram.
Til að geta notað gagnatengingu verður
símafyrirtækið að styðja hana og, ef með
þarf, virkja hana fyrir SIM-kortið þitt.
Aðgangsstaðir fyrir pakkagögn
Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
Nafn aðgangsstaðar
—Þú færð heiti aðgangsstaðarins frá
þjónustuveitunni.
Notandanafn
—Notandanafn getur verið nauðsynlegt til
að koma á gagnatengingu og það fæst hjá
þjónustuveitunni.
Biðja um lykilorð
—Ef þú þarft að slá inn lykilorðið í hvert
skipti sem þú tengist við miðlara eða ef þú vilt ekki vista
lykilorðið í tækinu skaltu velja
Já
.
Stillingar
110
Lykilorð
—Það getur verið nauðsynlegt að nota lykilorð
til að koma á gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá
þjónustuveitunni.
Aðgangskort
—Veldu
Venjulegt
eða
Öruggt
.
Heimasíða
—Sláðu inn veffangið eða númer
skilaboðamiðstöðvar margmiðlunarboða,
eftir því hvaða aðgangsstað þú vilt setja upp.
Veldu
Valkostir
>
Frekari stillingar
til að breyta
eftirfarandi stillingum:
Gerð símkerfis
—Veldu hvaða internetsamskiptareglur á að
nota:
IPv4
eða
IPv6
. Aðrar stillingar velta á því hvaða gerð
af símkerfi þú velur.
IP-tala símans
(aðeins fyrir IPv4)—Sláðu inn IP-tölu
tækisins.
DNS-veffang
—Í
Fyrra DNS-veffang
skaltu slá inn IP-tölu
aðalnafnamiðlarans. Í
Síðara DNS-veffang
skaltu slá inn
IP-tölu aukanafnamiðlarans. Vefföngin fást hjá
internetþjónustunni.
Veff. proxy-miðlara
—Sláðu inn veffang proxy-miðlarans.
Númer proxy-gáttar
—Sláðu inn gáttarnúmer proxy-
miðlarans.