Gagnatengingar og aðgangsstaðir
Tækið styður pakkagagnatengingar (sérþjónusta), t.d. GPRS
í GSM-símkerfi. Þegar tækið er notað í GSM- og UMTS-
símkerfum er hægt að hafa margar gagnatengingar í gangi
samtímis og aðgangsstaðir geta deilt gagnatengingu.
Stillingar
109
Í UMTS-símkerfinu er ekki slökkt á gagnatengingu þegar
símtal er í gangi.
Áður en gagnatengingu er komið á verður að velja
aðgangsstað. Þú getur tilgreint mismunandi gerðir
aðgangsstaða, t.d.:
•
MMS-aðgangsstað til að senda og taka við
margmiðlunarboðum,
•
Internetaðgangsstað (IAP) til að senda og taka við
tölvupósti og tengjast við internetið
Upplýsingar um hvaða gerð af aðgangsstað þarf að
nota fyrir tiltekna þjónustu má fá hjá þjónustuveitu.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
pakkagagnaþjónustu og áskrift að henni.