Nokia N76 - Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

background image

Leiðbeiningar um sannprófun
á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt.
Til að tryggja að þú fáir rafhlöður frá Nokia skaltu kaupa
þær hjá viðurkenndum söluaðila Nokia, ganga úr skugga um
að „Nokia Original Enhancements“ táknið sé á umbúðunum
og skoða heilmyndarmiðann á eftirfarandi hátt:

Þó svo að þessum fjórum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það
ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé sannvottuð.
Ef þú hefur minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé
ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur
fara með hana til viðurkennds þjónustu- eða söluaðila
Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna
sannvottun rafhlöðunnar. Ef ekki er hægt að staðfesta
sannvottunina skaltu skila rafhlöðunni til verslunarinnar
þar sem þú keyptir hana.

Sannvottun heilmyndar

1

Þegar þú horfir á heilmyndina
á miðanum ættirðu að sjá
Nokia-handabandstáknið
frá einu sjónarhorni og
„Nokia Original Enhancements“
táknið frá öðru.

2

Þegar þú snýrð heilmyndinni
til vinstri, hægri, upp eða
niður ættirðu að sjá 1, 2, 3, eða
4 punkta, allt eftir staðsetningu
hennar.

3

Skafðu hliðina á miðanum og þá
á að koma í ljós 20-stafa tala, t.d.
12345678919876543210. Snúðu
rafhlöðunni þannig að tölurnar
vísi upp. 20 stafa talan byrjar
í efri röðinni og heldur áfram
í neðri röðinni.

4

Fáðu staðfestingu á því að
20 stafa talan sé gild með
því að fylgja leiðbeiningunum
á www.nokia.com/batterycheck.

Til að búa til textaskilaboð skaltu slá inn 20 stafa töluna, t.d.
12345678919876543210, og senda hana á +44 7786 200276.

Til að búa til textaskilaboð, aðeins fyrir Indland:
Sláðu inn Battery, þá 20 stafa töluna, t.d. Battery
12345678919876543210, og sendu hana á 5555.

Gjaldskrá innlendra og erlendra símafyrirtækja gildir.

background image

Upplýsingar um rafhlöðu

117

Þá áttu að fá skilaboð sem segja til um hvort hægt er
að sannvotta töluna eða ekki.

Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?

Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með
heilmyndinni á miðanum sé ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu
ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda
þjónustuaðila eða sölustaðar Nokia til að fá aðstoð. Notkun
rafhlaða sem eru ekki samþykktar af framleiðanda getur
verið hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið
og aukahlutir þess virki ekki sem skyldi eða skemmist.
Notkun þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær
samþykktir eða ábyrgðir sem eiga við tækið.

Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia-rafhlöður er að finna
á www.nokia.com/battery.