
Stjórnandi forrita
Ýttu á
og veldu
Forrit
>
Stj. forrita
. Þú getur sett upp
tvenns konar forrit og hugbúnað í tækinu:
•
J2ME™ forrti byggt á Java™ tækni með endingunni .jad
eða .jar (
).
•
Önnur forrit og hugbúnaður sem henta Symbian-
stýrikerfinu (
). Uppsetningarskrárnar hafa
endinguna .sis eða .sisx. Aðeins skal setja upp
hugbúnað sem er sérstaklega hannaður fyrir Nokia
N76. Hugbúnaðarframleiðendur vísa stundum til
opinbers heitis þessarar vöru: Nokia N76-1.
Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri
tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er og fá þær sendar
sem margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi eða með
Bluetooth-tengingu. Þú getur notað Nokia Application
Installer í Nokia Nseries PC Suite til að setja upp forrit
í tækinu. Ef þú notar Microsoft Windows Explorer
til að flytja skrá skaltu setja skrána á samhæft
minniskort (staðbundinn disk).