Nokia N76 - Uppsetning forrita og hugbúnaðar

background image

Uppsetning forrita og hugbúnaðar

táknar .sis-forrit,

Java-forrit,

að forritið hafi

ekki verið sett upp að fullu og

að forritið sé uppsett

á minniskortinu.

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og

annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með
Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með
Java Verified™.

Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:

Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda
eða framleiðanda forritsins skaltu velja

Valkostir

>

Skoða frekari uppl.

.

Til að sjá upplýsingar um öryggisvottorð forritsins
skaltu velja

Vottorð

og síðan

Skoða upplýsingar

.

Sjá „Vottorðastjórnun“ á bls. 104.

Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða
endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu
aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað
hvort upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi,
eða öryggisafrit af öllum hugbúnaðarpakkanum sem
var fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið
skaltu fyrst fjarlægja forritið og setja það svo upp aftur

background image

Verkfæri

97

með því að nota upphaflegu uppsetningarskrána
eða öryggisafritið.

Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp
Java-forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig
um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður
er tilgreindur fyrir forritið biður tækið þig um að
velja aðgangsstað. Þegar þú hleður niður .jar-skránni
geturðu þurft að slá inn notandanafn og lykilorð
til að fá aðgang að miðlaranum. Þú getur fengið
notandanafn og lykilorð hjá söluaðila eða
framleiðanda forritsins.

1

Til að staðsetja uppsetningarskrá skaltu ýta á

og

velja

Forrit

>

Stj. forrita

. Þú getur einnig leitað í minni

tækisins eða á samhæfu minniskorti (ef það er í tækinu)
í

Skr.stj.

eða opnað tölvupóst í

Skilaboð

>

Innhólf

sem

inniheldur uppsetningarskrána.

2

Í

Stj. forrita

skaltu velja

Valkostir

>

Setja upp

.

Í öðrum forritum skaltu fletta að uppsetningarskránni
og ýta á

til að hefja uppsetninguna.

Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar
um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit
án rafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið
viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp
forritið ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.

Til að ræsa uppsett forrit skaltu staðsetja það í valmyndinni
og ýta á

. Ef forritið er ekki með sjálfgefna möppu

skilgreinda er það sett upp í

Forrit

-möppunni.

Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir
upp eða fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu
velja

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt

vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en eins
vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu
og virkni tækisins, eða valdið því að það virki ekki.

Uppsetningarskrár (.sis) eru áfram í minni tækisins eftir
að forrit þeirra hafa verið sett upp á samhæfu minniskorti.
Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé
hægt að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu
nota Nokia Nseries PC Suite til að taka öryggisafrit af
uppsetningarskrám og setja afritið á samhæfa tölvu.
Að því loknu skaltu nota Skráarstjórann til að eyða
uppsetningarskránum úr minni tækisins. Sjá „Skráastjóri“
á bls. 20. Ef .sis-skráin er viðhengi í tölvupósti skaltu eyða
skilaboðunum úr innhólfinu.