Nokia N76 - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

120

Viðbótaröryggisupplýsingar

Lítil börn

Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir.
Þá skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna
(RF) við notkun annað hvort í hefðbundinni stöðu við eyra eða
þegar það er haft að minnst kosti 1,5 sentímetra (5/8 tommur)
frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar
tækið er borið á réttan hátt á líkamanum við notkun ætti slíkur
búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að
minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd
var hér á undan.

Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta
tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur
sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk.
Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé
fylgt þar til sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist
að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða
hluti með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar sem
þar eru geymdar gætu þurrkast út.

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar
með talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni
lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal
samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til
þess að komast að því hvort það sé nægilega vel varið
fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla
nánari upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda
við heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis
kveða á um að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða
heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur
verið næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.

Ígrædd lækningatæki

Framleiðendur lækningatækja mæla með því að 15,3 sm
(6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss tækis og
ígrædds lækningabúnaðar, eins og gangráðs eða ígrædds
hjartarafstuðstækis til þess að komist sé hjá hugsanlegri
truflun í lækningabúnaðinum. Einstaklingar með slíkan
búnað ættu:

Alltaf að halda þráðlausa tækinu í meira en 15,3 sm
(6 tommu) fjarlægð frá lækningabúnaðinu þegar
kveikt er á þráðlausa tækinu.

Ekki að ganga með þráðlausa tækið í brjóstvasa

Hafa þráðlausa tækið við eyrað sem er fjær
lækningabúnaðinum til að draga úr líkum á truflunum.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

121

Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva
á þráðlausa tækinu tafarlaust.

Lesið og fylgið leiðbeiningum frá framleiðanda
ígrædda lækningabúnaðarins.

Ef þú hefur spurningar um notkun þráðlausa tækisins
með ígræddum lækningabúnaði skaltu hafa samband
við heilbrigðisstarfsfólk.

Heyrnartæki

Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum heyrnartæki.
Ef truflun verður skal leita til þjónustuaðila.

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum
ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin,
svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð
hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi
og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá
framleiðanda bílsins eða búnaðarins sem bætt
hefur verið við eða fulltrúa hans.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið
upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda
hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á tækinu.
Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt.
Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða
sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða
aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa
hugfast að loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja

hluti, þar með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan
búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á útþenslusvið
loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og
loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.

Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva
skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun
þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við
stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið
ólöglegt.

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er
á sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást
á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst
vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé
á vél bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið
sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel
dauðsföll. Slökkva skal á símanum á eldsneytisstöðvum,
svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal
takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum,
svæðum þar sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram,
efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði
þar sem sprengihætta er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki
alltaf. Þar á meðal eru svæði undir þilfari á bátum; svæði þar
sem sterk efni eru geymd eða búin til flutnings; ökutæki sem
nýta fljótandi svartolíugas (própan eða bútan) og svæði þar
sem í lofti eru efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

122

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta

tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi og
notendaforritaðar aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja
tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei
treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða
bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

Neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal
hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið
fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í tækið.

2

Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa
skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3

Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði
er valið. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4

Styddu á hringitakkann.

Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær
óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt. Ef ótengda sniðið
eða flugsniðið er virkt kann að vera þörf á að skipta um snið til
að virkja símaaðgerðina áður en hægt er að hringja
neyðarsímtal. Nánari upplýsingar má fá í þessari
handbók eða hjá þjónustuveitunni.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar
upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa
tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki
má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Upplýsingar um vottun (SAR)

ÞETTA ÞRÁÐLAUSA TÆKI SAMRÆMIST VIÐMIÐUNARREGLUM
UM ÁHRIF AF ÚTVARPSBYLGJUM.

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það
er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af
útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla
með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu
vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggismörk sem
ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.

Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er
notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri
mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru
2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm
af líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum
notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk
á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur
tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem
tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að
ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn,
t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð. Samkvæmt
viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun
tækisins við eyra 1,04 W/kg.

Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið
sé annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa
sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs.
Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um
vörur á www.nokia.com

background image

123